Hæ það er fátt meira pirrandi en þegar kettir koma inn í garðinn hjá manni og gera stykkin sín þar. Ég er með lítið barn sem vill gjarnan leika sér í garðinum, en ég þarf alltaf að athuga hvort ég finni ekki skít áður en hann fer á stjá. Kettirnir nota lítið tré hjá mér sem klóru og míga við hliðina á því. Hvað er hægt að gera til að stugga þeim í burtu?