Hamsturinn minn dó fyir stuttu.
Ég ákvað að fá mér ekki annan heldur langar mér að prófa önnur dýr. Ég er mjög mikið fyrir það að kúra með dýrunum, en því miður gat ég ekki kúrað með hann Pjakk Pitter. (gamli hamsturinn minn)
Mér hefur langað svo mikið í naggrís síðan vinkona mín fékk sér einn, þeir eru nú mjög mikið fyrir það að kúra! (JESS, einhver með sömu hobby! :))
Ég er að fá gefins naggrísin hana Terku (allavegann halda eigendurnir að þetta sé kona.) Hún er svona c.a. tveggja ára, rósettunaggrís (Oh, þeir eru sko sætastir) og allger dúlla. Samt var fyrsta heimsónkin ekkert besta heimsókn í heimi. Hún beit vinkonu mína í puttann! (Hún átti ekkert að vera að koma við eyrun!) Ég fæ Terku síðan heim til mín trúlega einhvern tímann í kvöld (JIBBÝ!)
Ég skal endilega senda fleiri greina um hana seinna!