Vinur pabbi er í löggunni og hann sagði mér einu sinni frá því að tveir félagar sem voru að vinna með honum lenntu í því að þeir fengu útkall og það var gömul kona sem hringdi inn og tilkynnti þeim að það væri slanga bak við eldavélina sína!
Þeir héldu að þetta væri bara enn eitt útkall frá gamalli,einmanna konu sem vantaði félagsskap . Samt sem áður fóru þeir heim til gömlu konunnar sem bauð þeim kurteisislega upp á kaffi og kökur og byrjaði bara að spjalla.
Eftir að hafa setið þar í rúmar 20 mín minntist annar lögreglumaðurinn á útkallið og konan sagði: ó.. já alveg rétt. Hún er búin að vera hérna bak við eldavélina frá því að ég flutti inn eða í rúm 5 ár. Löggurnar héldu að hún væri bara að gera þetta til að halda þeim lengur og ætluðu að standa upp og fara.
Þá sagði gamla konan aftur: en ætlið þið ekki að taka hana?
Þeir færðu eldavélina frá veggnum og þar lá 1 og hálfs metra löng slanga sem hafði lifað á mylsnu og öðru smáæti síðustu 5 árin.
Þeir tóku hana með sér og hringdu í fyrri eiganda íbúðarinnar og hann var alveg forviða yfir að slangan hafi ekki verið dáin. Hún hafði týnst rétt áður en hann flutti og maðurinn hélt hún hafði bara sloppið út og dáið eða eitthvað!!

p.s alveg satt!