Við erum tvö í fjölskyldunni með ofnæmi fyrir hundum, þar af annað með nokkuð mikið, en okkur dauðlangar öll í hund. Veit einhver eitthvað um þessi málefni fyrir víst, það er endalaust af síðum um þetta á netinu en þær stangast gjarnan á um allt. Ef einhver hefur reynslu af því að hafa hund og vera með ofnæmi væri gott að fá smá innlegg hér. Við höfum heyrt að Silky Terrier sé mjög góður fyrir okkur ofnæmisgemlingana og værum til í einn slíkann en viljum vita meira.
Ef þið vitið eitthvað svarið þessu þá.