Hamstranir mínir Ég var að gefa hömstrunum mínum að borða svo fór ég í tölvuna í næsta herbergi. Allt í einu kemur einn brúnn og hvítur hamstur inn í herbergið, ég stekk upp og gríp hann og fer að búrinu en búrið var opið. Ég lét hamsturinn í búrið en búrið var tómt. Ég fór að leita að þeim þá fann ég einn og lét hann í búrið, fór að leita aftur þá var hamstramamman í sama herbergi, lét hana í búrið fór að leita. Fór niður á hnén, sá ég ekki einn inní eldhúsi að borða milsnurnar á gólfinu eftir kvöldmatinn, tók hann upp og á leiðini upp sá ég mömmuna vera þar á flakki. Mér fannst skrýtið því ég var búinn að láta hana í búrið, ég lét báða hamstrana í búrið en sá að ég hafi skilið aftur eftir opið búrið þá voru 6 hamstrar enn eftir. Leitaði áfram en fann engan í alla-vega 1 klst. Þá fann ég tvo undir uppþvottavélinni náði þeim báðum. Þá hugsaði ég með mér að nú væru 4 eftir. Hélt áfram leitinni þá fann ég einn bak við einn skápinn sem er inní herberginu sem hamstranir eru í svo fann ég annan undir skrifborðinu. 2 eftir þvílíkur léttir en ég leitaði alveg til 2 um nóttuna en fann ekki fleiri. Ég fór upp í rúm og fór að sofa morgunin eftir byrjaði ég srax að leita, ég fann þá srax einn sem var vælandi fyrir framan búrið sem var öruglega sár svangur en fann ekki þann síðasta, 2 klst gafst ég upp lagðist í sófann og hugsaði um hamsturinn. Heyri ég þá ekki bara eitthvað hljóð það var eins og það væri hliðina á mér, það stoppaði stundum í smástund en byrjaði alltaf aftur. Þegar ég leit undir sófann sá ég ekki bara lítinn sætan hvítan hamstur vera að þvo sér. Ég fór með hann í búrið og lagði mig í rúmið og sofnaði.

Takk fyrir

Kveðja, sopranos