Páskakanína fannst í Elliðaárdalnum-taka 2 Ég reyndi að senda inn grein um kanínu á mánudagskvöldið en hún hefur ekki enn skilað sér. Þannig er mál með vexti að ég fór í göngutúr um páskana og fann sæta páskakanínu við bekk í smá rjóðri neðst niðri í Elliðaárdal. Mér finnst trúlegt að hún hafi sloppið úr búri í grenndinni eða þá að einhver “dýravinurinn” hafi losað sig við hana eftir að hann nennti ekki að hugsa um hana lengur. Ef svo er finnst mér finnst það alveg agalegt, fólk verður að taka ábyrgð á dýrum sem það tekur að sér. Það er alltof mikið um þetta, fólk kaupir gæludýr handa krökkum sem missa fljótt áhugann á þeim eins og hverju öðru leikfangi. Þá er litlu skinnunum bara hent út á gaddinn með von um að þau lifi af.

Eins og stendur er ég með kanínuna í baðinu heima hjá mér en ég hef enga aðstöðu til að vera með greyið, ekkert pláss og engan garð. Ég ætla því að biðla til sannra dýravina á Huga og athuga hvort þeir hafi áhuga á að taka að sér þessa kanínu. Þetta er að ég held strákur, dálítið stór, hvítur og alveg ægilega góður, rólegur og kelinn, greinilega gæludýr. Eru ekki einhverjir hérna sem eiga kanínur og vilja bæta einni við eða langar í eina?

Ég er búin að hringja í allar dýrabúðir og hafa samband við dýralækna en menn vísa hver á annan og enginn virðist geta gert neitt fyrir þetta litla grey. Ef þetta eru ekki hundar eða kettir þá virðist sem enginn hafi áhuga á að bjarga dýrunum og að þau megi bara eiga sig. Ég er í stökustu vandræðum og ef ég finn engan sem vill taka hann að sér þá er ég hrædd um að ég neyðist til að fara með hann í Öskjuhlíðina, sem af tveimur slæmum kostum er skárri en Elliðaárdalurinn þar sem það er jarðhiti í Öskjuhlíðinni. Ég vona innilega að til þess þurfi ekki að koma.

Þið sem hafið áhuga getið svarað hér á Huga og/eða sent póst á hvitakanina@hotmail.com.