Gríslingur og Aníta eru naggrísirnir mínir.
Gríslingur var upphaflega kona en þá sá ég að það var hann!

Ég fékk Anítu fyrir hann Grísling.
Þeim samdi ekkert of vel fyrst en það lagaðist.

Aníta er ekki enn orðin eins gæf og Gríslingur er en þau eru bæði allgjörar kelirófur.

Þau eru bæði rósettur. Mikilvægt er að gefa naggrísum c-vítamín töflu.
Amma hans Gríslings ætlaði að vera svaka góð við hann og gefa honum töflu því að honum finnst þær svo góðar.
En óvart þá gaf hún honum parkótín töflu.
Greyið Gríslingur var alveg uppdópaður en það er sem betur fer allt í lagi með hann.

Ég hef fengið mjög góð ráð á www.tjorvar.is/spjall og ég mæli með því að þeir sem eru í einhverjum vandræðum með dýrin sín leiti ráða þar.

Kveðja, Pingvin, Gríslingur og Aníta
It's a cruel world out there…