Ég fékk kvenkyns naggrís til þess að halda félagsskap fyrir hann Grísling minn.
Hún er 1 árs, rósetta eins og hann.
Þeim samdi nú ekkert mjög vel í fyrstu en það er farið að lagast.
Það er mjög mikil samkeppni á milli þeirra, t.d. er hann Gríslingur mjög abbó ef að ég er með hana.
En samt er hann mjög ánægður með hana.
Þau eru nú alveg ágætir vinir, þanni að það sést að þau vilja hvort annað. :)
Hún heitir Aníta, en ég er ekki of ánægð með það nafn svo að ef einhver er með uppástungur þá er þér velkomið að hjálpa mér :)
It's a cruel world out there…