Hérna er smá ritgerð sem ég gerði um kívífuglinn.


Kívífuglinn



Tegun, ætt og nafn.

Í raun og veru er kíví fuglinn fjórar tegundir ófleygra fugla sem tilheyra ættkvíslinni Apteryx. Nafn fuglsins er upprunið úr máli maóra og hljómar líkt og kall karfuglsins sem er afar áberandi í skógu Nýja-Sjálands.

Litur, stærð og lifnaðarhættir

Kívífuglar eru grábrúnir á litinn og á stærð við hænu. Kívifuglar eru á ferli á nóttinni og róta þá í skógarbotninum eftir einhverju ætilegu, t.d. ormum, skordýrum og berjum. En þegar dagar þá halda þeir til holu sinnar og eru þar allann daginn. Kívífuglar hafa aðlagast næturlíferni á sama hátt og kattardýr, þeir hafa meðal annars þróað með sér veiðihár sem er einstakt meðal fugla.

Kynin og egg þeirra

Kvenfuglinn verpir aðeins einu til tveimur eggjum sem eru um 450 grömm að þyngd, enkarlfuglinn liggur á eggjunum.
Útungunin tekur 80 daga. Ungarnir klekjast úr eggjunum með fjaðrir og með opin augu. Kvenfuglar allra tegunda kívífugla eru stærri en karlfuglarnir. Fuglarnir eru einkvænisdýr og getur samband karl- og kvenfugls varð í meira en 20 ár.

Útrýmingarhætta

Fyrir fáum áratugum var kívífuglin í mikkilli útrýmingarhættu en velheppnaðar verndunaraðgerðir og hæfni fuglanna til að laða sig að nýjum búsvæðum, eins og akurlendi,hefur verið þeim til mikillar bjargar. Nokkrar tegundir kívífugla eru þó enn í mikilli útrýmingarhættu.

Fjórar tegundir kívífugla:

Tokoeka-kíví (Apteryx australis) er með mestu útbreiðsluna af kívífuglunum. Hann er að finna á Norður- og Suðureyju og á Stewarteyjum. Það eru til tvö afbrigði af tokoekafuglins: Suðræni-tokoeka og haast-tokoeka. Suðræni-tokoeka lifir í skóglendi Suðureyju en haast-tokoeka finnst víðar. Stofnstærð haast-tokoeka er að vísu aðeins um 200-300 fuglar en suræni-tokoekinn er mun stærri og virðist ekki vera mikilli hættu.



Litli-blettakíví (Apteryc oveni) er
útdauður á stærstu eyjunum en lífvænlegur
stofn um þúsund fugla er á Kapitaeyju og um hundrað einstaklingar á nokkrum smáum
eyjum sem hafa verið gerðar að þjóðgarði.



Stóri-blettakíví (Apteryx hasti) finnst á Suðurey.
Stofnstærð hans er um 10-20 þúsund fuglar. Enda er þetta stærsta tegund kívífugla.



Brúni-kíví (Apteryx mantelli). Það eru til tvö afbrigði af honum. Þau eru: Brúni-okarito-kívíinn og norræni-brúnkívíinn. Brúni-okarito-kívíinn er brúngráleitur með einstaka hvítt andlitsfiður. Þessi afbrigði eru bæði í talsverðri útrýmingarhættu.

Kívífuglar ekki fuglar?

Einangrun Nýja-Sjálands hefur gert kívífuglunum kleyft að þróast á sérstakan hátt og eru þeir á margan hátt ekkert ,,fuglalegir”. Bandaríski dýrafræðingurinn Stephe Jay Gould hefur nefnt þá ,,heiðursspendýr”. Þeir grafa göng eins og greifingjar og hafa veiðihár eins og kattardýr.
Fjaðrir kívífuglanna minna á feld og þess vegna líkjast þeir í raun og veru rottum. Vistfæðilega séð hafa þeir sömu stöðu á Nýja-Sjálandi og mauraætur og broddgeltir hafa í vistkerfi Evrópu og Afríku.