Sunna Gestsdóttir (UMSS) keppti nú fyrir skömmu á innanhúss-móti í Noregi.
Hún Byrjaði ágætlega í langstökkinu með 5,86m og sigraði greinina. Árangurinn er betri en á fyrsta móti í fyrra (5,78m)
Síðan náði hún 25,02 sek í 200m hlaupinu sem er sami tími og hún hljóp á í fyrsta móti 2001.
Sunna endaði svo mótið á að hlaupa 60m á 7,98sek - sem er þó töluvert frá hennar tíma í fyrra.
“Ég verð að segja að 60m voru alveg út úr kú, hinar greinarnar voru svona OK” sagði Sunna eftir mótið.
Næsta mót hennar er svo Norska Meistaramótið innanhúss sem fram fer um helgina í Stangehallen skammt fyrir utan Osló.