Er það bara ég eða er búið að bæta metið?

Ég var að horfa á eurosport í beinni (held ég) fyrir nokkru. Þá var eitthvað breskt mót í gangi og þar var Asafa Powell sem að hljóp 0,12 sekúndum betur en heimsmetið.

Ég hef verið í danmörku og þýskalandi undanfarið og hef ekki haft tölvu né sjónvarp stóran hluta af þeim tíma svo að ég hef ekki mikið fylgst með.

En var metið bætt og var það nýlega?