Er þetta alveg dautt hérna?
Er ekki góð hugmynd að taka sig til allir og senda inn almennilegar greinar á fullu og koma smá umræðum og lífi í þetta áhugmál?
Annars er ég nokkuð nýr hérna inná þessu áhugamáli (held mig oftast á tölvuleikjasvæðinu) og veit ekki hvort þetta sé bara svona og hafi alltaf verið… Finnst það synd ef þetta deyr alveg út því þetta gæti verið svo miklu líflegra ef að það kæmu fleiri inní þetta.
Hey ég er með hugmynd, væri það ekki sniðugt að segja öðrum á æfingum frá? Nú er nú að koma vetur og flykkjast fleiri í tölvur og þá væri það góður ími að segja einhverjum frá einmitt núna.
Hvað finnst ykkur??
Chuck Norris is the reason why Waldo is hiding.