Ég hafði ekki neina hugmynd um hvar ég ætti að setja þetta þar sem fimleikar er ekki inná Huga!

Allavega, ég er búin að vera meidd í löppinni en svo fór ég til læknis sem sagði að þetta væru álagsmeiðsli og hún lét mig fá teygjusokk, ég fór á nokkrar æfingar og það var allt í lagi en núna fæ ég alltaf verk í hælinn á sömu löpp.
Ég var að spá í hvort að þetta gæti leitt niður í hælinn frá löppinni.

Getiði svarað sem fyrst, ég er að fara að keppa um helgina.