Þórey Edda Elísdóttir FH sigraði í stangarstökki á danska Meistaramótinu hún stökk 4.30 metra og Vala Flosadóttir ÍR varð í öðru sæti en hún stökk 4.20 metra.
Þær stöllur Þórey Edda og Vala höfðu sigur á Marie Bagger Bohn, danska methafanum og Hönnu Miu Persson, sem er næst besta stangarstökkskona svía.Þetta er besti árangur Völu á þessu innanhússtímabili, en hún stökk 4.30m, bæði innan og utanhúss á sl. ári.Þriðja varð svo Marie Bagger stökk 4.00m, en Hanna Mia felldi byrjunarhæð sína 4.00m þrisvar sinnum