Maður tekur sér langt frí og alt fer út um þúfur. Nei djók
Ég á bágt með að trúa þessu. Þetta áhugamál er ekki bara rotnandi heldur er það löngu orðið rotið, það er eins og því sé ekki viðbjargandi. Ég veit að ég geri ekki mikið en mér blöskraði þegar ég sá að ég var enn ofurhugi ég ætlaði ekki að trúa því. Jæja ég hef sent svona bréf áður með ákveðnum hugmyndum um hvernig megi endurvekja frjálsar sem eru dauðar á veturna. Þá gengu betri tímar í garð og frjálsar voru komnar í 70 sæti held ég. Nú vil ég að einhver stjórnandi, þið eða bara ég sendum vinum okkar skilaboð um að umræðan sé á frjálsum og þar séu allir pennarnir. Hvetja þá til að skrifa sjálfa inná kannski 1 vandaða grein og taka þátt í umræðunni og forwarda svo bréfinu. Það gæti smitað þá og vini þeirra af frjálsar dellunni sem ég fékk fyrir löngu.

Wanganna