Alltaf þeger ég er búinn að vera að hlaupa mikið þá fæ ég alltaf þennan svakalega verk í sköflungana ! held að þetta er eikker skortur á vítaminum eða eikkað en ég þori ekki að segja þjálfaranum né félögum mínum í frjálsum því þá gætu þeir bannað mér að hlaupa útaf meiðslum og allir sannir frjálsíþróttakappar þekkja að það er ekki gaman að vera útundan og horfa bara á hina.

Ég hef fengið svona áður en samt ekki eins alvarlegt þá voru þetta bara aðeins verra en harðsperrur en núna er þetta allveg svakalegur sársauki og ég bara veit ekki hvað ég á að gera.
Ég fór til læknis en hann vissi ekki hvað þetta væri og ráðlagði mér að taka mér hvíld á hlaupinu en ég vissi strax að það er ekkert að gerast.
Núna er ég byrjaður að hlaupa mikið hægar og er ekki viss um að ég komist langt á þessum bévítanns fótleggjum mikið lengra.
ég er að spá í að segja þjálfaranum mínum frá þessu en þá fæ ég sennilega ekki að hlaupa.
Ég er að vona að þetta sé mjög allgengt og það sé einföld lausn á vandamálinu.

Þessvegna spyr ég ykkur mínir kæru frjálsíþrótta hugarar Er þetta algengt eða er ég í djúpum ****
ég tel mig vera hugara!!!