Jamm gengur allavega vel í sjónvarpsþáttunum.
Hef heyrt hana syngja líka þegar Britney var í Oprah þættinum.. þá var svona lítið brot af litlu systur að syngja. Og hún er pottþétt með einhverja sönghæfileika. Það hefur í raun verið í planinu hjá Spears fjölskyldunni að koma henni í bransann en bara þegar hún hafi aldur til þess.
Núna er hún orðin svipað gömul og þegar Britney skrifaði undir sinn plötusamning svo maður veit aldrei hvað getur gerst í náinni framtíð.
En nei þetta verður kannski bara svona Aaron Carter dæmi… Smá frægð í nokkur ár.
Samt maður útilokar náttúrulega ekkert. Janet Jackson er mjög fræg þó að hún hafi fyrst bara verið þekkt sem systir Michaels.