Britney Spears hefur nú viðurkennt það í viðtali við fjölmiðla að hún sé ennþá í algjöru rusli útaf sambandslitum sínum við Justin Timberlake og að nýlega hafi hún hafið meðferð hjá geðlækni vegna málsins. Stelpan segir að henni hafi liðið mjög illa andlega og fundist hún aldrei getað byrjað í öðru sambandi þar sem hún sé skíthrædd um að verða hafnað á ný. Þá hefur hún líka viðurkennt það að hafa logið til um það að hún væri hrein mey og sagðist sjá mikið eftir því.Æ æ ég vorkenni henni svo mikið eða hittó?Ég hélt að höfnun væri hluti af lífinu.Er það miskilningur eða………….



Rússnensk yfirvöld hafa nú tekið ákvörðun í máli Lance Bass, N sync homma með meiru, sem ætlaði að fá að fara útí geiminn með rúsnenskum geimförum í Október. Niðurstaða málsins er sú að Lance fær ekki að fara með þeim þar sem hann náði ekki að uppfylla öll skilyrði samningsins og er þar að auki alltof mikil kelling að mati yfirþjálfara rússnensku geimfaranna. Lance er núna í Star City þjálfunarstöðinni rétt fyrir utan Moskvu að pakka niður dótinu sínu og gera sig tilbúin til að fara heim með skottið á milli lappana. Ég er svo sammála rússunum