Bandaríska leikkonan og rokkstjarnan Courtney Love mun væntanlega fara með hlutverk lafði Mackbeth í nýrri kvikmynd sem gera á eftir leikriti Shakespeares í Hollywood. Meðal annarra leikara er Skotinn Peter Mullan.

Franski leikstjórinn Luc Besson framleiðir myndina en Vincent Regan leikstýrir.

Courtney hefur að undanförnu stundað nám í framsögn til að undirbúa sig fyrir myndina. Hún hefur almennt fengið ágætis dóma fyrir þær myndir sem hún hefur leikið í, einkum The People vs Larry Flynt, þar sem hún lék á móti Woody Harrelson.

Heimildir: <a href="http://www.mbl.is/folk">mbl.is</a
sæll