Leikkonan Cameron Diaz segir í viðtali við Esquire tímaritið að hún geti ekki hugsað sér að borða svínakjöt eftir að hún heyrði að svín séu með vitsmuni á við þriggja ára börn.

Hún segir að hún eigi þriggja ára frænku og þess vegna væri það að borða svínakjöt svipað og að borða litlu frænku sína.

Þetta þýðir að hún þarf að finna sér nýtt “þynnkufæði” þar sem hún hefur áður sagt að hún fái sér alltaf beikon og bjór daginn eftir að hafa verið út á lífinu.
HELLO!