Bandaríska leikkonan Pamela Anderson hefur greint frá því að hún sé með lifrabólgu C og að hún hafi fengið læknismeðferð við sjúkdómnum. Anderson sem er 34 ára, sagði í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í gær að hún hafi smitast af sjúkdómnum með því að nota sömu nálina og eiginmaðurinn fyrrverandi, Tommy Lee, þegar hún var húðflúruð.

“Hann sagði mér aldrei frá því í hjónabandi okkar” sagði hún.

Anderson, sem m.a. lék í framhaldsþáttunum Strandverðir, á í harðvítugri forræðisdeilu við Lee. Talskona Lees vísaði fullyrðingum Andersons á bug. “Vonandi gerir hún sér grein fyrir því að hún er einungis að skaða sjálfa sig og börnin meira með því að nota fjölmiðla til að reyna að skaða Lee,” Sagði Beth Katz, talskona Lees.

Lee og Anderson eiga tvo syni..