Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði nýlega kröfu aðstandenda keppninnar Ungfrú Ísland.is um að sett verði lögbann á heimildarmyndina “Í skóm Drekans” en í henni er fjallað um þáttöku Hrannar Sveinsdóttur í keppninni árið 2000. Að sögn Ingvars Haraldssonar hjá sýslumanni þóttu ekki lagaskilyrði til lögbanns.