Ég sá í Myndir Mánaðarins blaði þessa mánaðar að Robert Pattinson úr Twilight er kominn á fast. Ekki nóg með það, heldur er það ástralska leikkonan Emilie De Ravin sem leikur á móti honum í myndinni Remember Me, en hún lék einnig eina af aðalpersónum í LOST, Claire Littleton. Stóð í greininni að þetta væru sláandi og hrikalegar fréttir fyrir unglingsstúlkur, en hann hefur verið vinsæll meðal þeirra og var kosinn kynþokkafyllsti maður heims fyrir People-tímaritið. Ég viðurkenni að mér sjálfri finnst hann rosa sætur, en auðvitað átti ég ekki séns;) Emilie er 5 árum eldri en Robert, en það er ekki mikill munur. Hún hefur samt miklu meiri reynslu en hann, hún hefur verið gift Josh Janowicz síðan í júní 2006, en þau eru að skilja núna.

Hér eru myndir af þeim: http://justjared.buzznet.com/2009/06/19/robert-pattinson-emilie-de-ravin-kissing-couple :)