Poppkrúttið Justin Timberlake var laminn í köku sem unglingur fyrir það eitt að vera hvítur. Atvikið átti sér stað í Memphis í Tennessee fylki, en þar er stór hluti íbúanna blökkumenn. Justin segist hafa sloppið úr slagsmálunum með glóðarauga, brotið rifbein og nýja lífssýn. „Það erfiðast að reyna skilja af hverju þetta kemur fyrir mann,” segir Justin. „Svo kemur að því að maður verður bara að hætta að hugsa um þetta. Þegar maður kemst svo yfir það, þá er maður sterkari fyrir vikið.”
[panama]