Föður leikkonunnar Lindsay Lohan hefur verið sleppt úr fangelsi í New York þar sem hann hefur dvalið sl. tvö ár, en hann var dæmdur fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis auk annarra brota.

Michael Lohan hefur sagt í samtali við fjölmiðla að hann vilji bæta samband sitt við dóttur sína, nú þegar hann getur um frjálst höfuð strokið.

Samkvæmt upplýsingum frá fangelsisyfirvöldum í Collins-fangelsinu, sem er skammt frá Buffalo í New York-ríki, var Micheal Lohan dæmdur í fangelsi fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis, tilraun til líkamsárásar og fyrir önnur brot. Hann var kærður fyrir tilraun til líkamsárásar þegar hann réðst á mág sinn í teiti.

Á meðan hann beið eftir að verða dæmdur í því máli var hann tekinn fyrir að setjast ölvaður á bak við stýri. Hann missti m.a. stjórn á bifreiðinni sem lenti á staur og síðan kviknaði í henni. Micael Lohan varð ekki meint af þessu.

Í viðtali við Newsday sagði Lohan að hann hafði stundað Biblíufræði á meðan hann var í fangelsinu. Þá segist hann vilja starfa sem prestur. „Ég vil hjálpa fólki,“ segir hann. „Ég vill ekki að fólk geri sömu mistök sem ég gerði.“
[mbl]