Samkvæmt heimildum þá reyndi Britney Spears að fremja sjálfsmorð eftir að hafa rakað allt hárið af sér um daginn.

Heimildarmaður hefur greint frá því að Britney hafi rakað af sér hárið stuttu eftir að fjölskylda hennar og Kevin Federline reyndu að fá hana til að fara í meðferð.

“Britney fannst Kevin vera að hóta því að taka syni þeirra frá henni og hún vill ekki lifa án þeirra” segir heimildarmaðurinn.

Fjölskylda Britney sóttu hana víst eftir að hún hafi rakað af sér hárið en hún stakk af en vitni segist hafa séð hana labba út í umferð í von um að einhver mundi keyra á sig.