Ég las hér í amerísku slúðurblaði frásögn um af hverju Cameron Diaz og Justin Timberlake slitu 3 ára sambandi. Náin vinkona Cameron segir frá :

Cameron fannst að þau ættu að taka næsta skrefið í sambandinu. Henni langaði að selja húsið sitt og flytja inn til Justin en þegar Justin heyrði um áætlanir hennar sagði hann henni að hann væri ekki tilbúinn að taka það skref í sambandinu. Cameron sagði þá við Justin að hann hafði um tvennt að ráða “ Flytja inn saman eða enda sambandinu ” Justin vildi frekar enda því .

Cameron vildi framtíð með honum og segir við vinkonu sína að hann hafi kramið á henni hjartað. Vinkona hennar segir hana hafa langað til að verða Mrs. Timberlake alveg síðan í byrjun sambandsins en hafði ekki viljað beita Justin sem er 9 árum yngri en hún, þrýstingi.

Justin elskaði Cameron og gerir enn en hann er ekki tilbúinn í giftingu eða næsta skref segir vinur Justin.

Cameron var enn að jafna sig á sambandinu þegar hún heyrði að Justin Timberlake og Scarlett Johanansson voru eitthvað að mixa eftir gerð myndband hans “ What comes around..”

Cameron er svo sár að hún bað um sæti eins langt frá Justin Timberlake og hægt var á GoldenGlobe. Cameron og Justin áttu að hittast á kaffihúsi en Cameron cancelaði því vegna þess að hún vissi að það myndi verða enþá sársaukafyllra.

Cameron bíður eftir að Justin átti sig á því að hann hafi gert mistök og bíður eftir að hann hringi í sig og vilji sig aftur.

Hvað finnst ykkur ?