Tekið af www.visir.is

Lohan í meðferð
Leikkonan Lindsay Lohan er komin í meðferð í Los Angeles vegna vímuefnavandamála sinna. „Ég hef ákveðið að hugsa um heilsu mína. Ég þakka fyrir góðar kveðjur og vonast til að einkalíf mitt verði virt,“ sagði Lohan í yfirlýsingu sinni.
Í síðasta mánuði greindi upplýsingafulltrúi Lohan frá því að leikkonan hefði sótt AA-fundi. Sagðist Lohan þá hafa sótt fundina í eitt ár. „Ég hef ekki drukkið í sjö daga. Ég er ekki einu sinni nógu gömul til þess. Ég drekk ekki þegar ég er á klúbbum en ég drekk með vinum mínum heima hjá mér. Ég þarf þess samt ekki. Mér líður betur án áfengis, það er miklu skemmtilegra,” sagði hin tvítuga Lohan.
Í júlí síðastliðnum var Lohan lögð inn á sjúkrahús í nokkra klukkutíma vegna vökvataps við tökur á myndinni Georgia Rule. Ekki er langt síðan botnlanginn var tekinn úr henni.
Já, það er það sem ég held.