Sveitasöngvarinn Keith Urban hélt til Ástralíu í gær eftir að hann var útskrifaður úr áfengismeðferð í Bandaríkjunum. Eiginkona Urbans, leikkonan Nicole Kidman, hefur verið í Ástralíu síðan fyrir jól en þar er hún að vinna að kvikmynd.

Samkvæmt áströlskum fjölmiðlum sáust hjónin saman í Sidney í dag þar sem þau yfirgáfu kvikmyndaverið þar sem Kidman er að vinna.

Urban hefur ekki komið til Ástralíu frá því að þau gengu í hjónaband í júní en hann hefur um tveggja mánaða skeið verið í áfengismeðferð.

Hjónin ólust bæði upp í Ástralíu; Kidman fæddist á Hawaii en Urban á Nýja-Sjálandi. Þau hittust fyrst í janúar á síðasta ári í veislu, sem ástralska ríkisstjórnin stóð fyrir í Los Angeles þeim til heiðurs.