Ég var að heyra í skólanum um einhverja fræga stjörnu, held það hafi verið poppstjarna eða jafnvel leikkona, samt örugglega hið fyrra. Sem semsagt var eitthvað að tala um að henni fyndist myndirnar(sem við höfum líklegast öll séð) af börnum og bara fólki yfir höfuð í hungursneið ekkert slæmar. Hún sagði að hún væri jafnvel alveg til í að vera ein af þessum konum, nema bara kannski ef hún væri laus við flugurnar.

Fékk að heyra þetta í tíma og maður varð hálf sjokkeraður af þessu, að poppstjarna… við erum að tala um konu sem synir í peningum og siglir í gegnum lífið sé að finna samsvörun með sjálfri sér í myndum af fátækum börnum og fólki í Afríku(eða hvar það var) sem eiga bókstaflega ekkert, ekkert að borða, ekkert að klæðast og hafa engan að.

Kannast einhver við þetta eða veit kannski hver sagði þetta? Langar soldið til að vita það, megið endilega gefa mér link líka á viðtalið ef þið vitið um.