Hollywood-leikkonan Jessica Alba braut í sér tönn við tökur á kynlífsatriði í kvikmyndinni Good Luck Chuck. Kvikmyndin er sögð rómantísk gamanmynd. Alba segir mikið hafa gengið á hjá þeim Dane Cook, sem leikur með henni í kvikmyndinni, við upptökur á þessu atriði og flísaðist úr framtönn leikkonunnar.

Þessu sagði Alba frá í sjónvarpsþættinum Extra og spurði viðmælanda sinn að því hvort þetta væri ekki ógeðslegt. „Við skelltum andlitunum saman og þá gerðist þetta. Þetta er ekki rólegasta eða rómantískasta ástaratriði allra tíma. Dane er sannarlega ótaminn," sagði Alba og líkti honum þvínæst við gamanleikarann Steve Martin. Það er Bang Showbiz slúðurfréttaveitan sem færir þessa frétt.

-mbl.