Nýbakaði faðirinn Brad Pitt fór á bak við kærustu sína og barnsmóður, Angelinu Jolie, á dögunum þegar hann sendi föður Jolie, leikaranum Jon Voight, myndir af nýfæddri dóttur þeirra, Shiloh.

Stirt samband hefur á verið á milli feðginanna í langan tíma og lokaði Angelina á öll samskipti milli þeirra árið 2002, þegar Voight kom fram í fjölmiðlum og sagði að hún ætti við geðræn vandamál að stríða.

Áætlun Pitts um að koma á friði milli feðginanna rann þó út í sandinn því að Jolie varð öskuvond út í sinn heittelskaða og sagði honum að hann ætti að láta fjölskyldumál sín í friði, annars væri samband þeirra búið.