Leikkonan Angelina Jolie og leikarinn Brad Pitt, sem eignuðust stúlku fyrir stuttu, vilja ættleiða annað barn, en parið á tvö ættleidd börn fyrir. Þetta kemur fram í viðtali við Jolie sem verður birt annað kvöld á CNN.
Jolie og Pitt eignuðust í síðasta mánuði dótturina, Shiloh Nouvel, en fyrir eiga þau dótturina Zahara, sem er 16 mánaða og var ættleidd frá Eþíópíu, og soninn Maddox, sem er fjögurra ára. Jolie ættleiddi Maddox frá Kambódíu.
Þau hafa ekki ákveðið hvaðan þau ætla að ætleiða en nokkur lönd koma til greina
dilja93@hotmail.com