Julianne Moore segist alltaf vera svöng. Hún segir að hún sé alltaf að borða lítið til að halda “línunum í lagi”. Hún segist lifa á megrunfæði og að hún borði helst bara morgunkornsstangir og jógúrt.
Hún segir að flestar leik- og söngkonur geri þetta, og ef þær eiga að fara í myndatöku daginn eftir þá borði þær ekki kvöldmat kvöldið áður. Til dæmis ef hún léttist um 3 kg þá yrði það ásættanlegt á Hollywood-mælikvarða.