Angelina Jolie og Brad Pitt eiga von á barni í sumar, að því er fram kemur á vef bandaríska tímaritsins People. „Já, ég er barnshafandi,“ segir vefurinn að Jolie hafi sagt við hjálparstarfsmann í Dóminíkanska lýðveldinu á mánudaginn, en hún er þar við tökur á nýrri kvikmynd, The Good Shepherd (Góði hirðirinn), ásamt Matt Damon.

Vefurinn segir ennfremur að fulltrúar bæði Pitts og Jolie hafi staðfest fregnina, en þessir fulltrúar eru þó ekki nafngreindir. Jolie er þrítug og á tvö börn. Pitt er 42 ára og barnlaus.