Heimili Spears fjölskyldunnar er í Kentwood, Louisiana í Bandaríkjunum. Smábær fyrir norðan New Orleans. Fellibylurinn hefur því haft áhrif á líf ættingja og vina hennar Britney.

Britney hefur ákveðið að styrkja fórnarlömb hamfaranna en ekki hefur verið staðfest hver upphæðin verður. Litla systir hennar Jamie Lynn sem er þekkt fyrir vestan úr sjónvarpsþáttunum Zoey 100, hefur ákveðið að taka þátt í hjálparstarfi Rauða Krossins í bænum McComb ásamt vinkonum sínum.

Systurnar eiga tvo frændur sem búa í New Orleans sem eru meðal þeirra týndu.