Ég held að Britney sé viljandi að reyna að rugla fjölmiðlana í sambandi við ófædda barnið hennar.

Fyrir ca. 2 mánuðum síðan sást hún vera að skoða barnaföt fyrir stelpur. Nú á hún víst um daginn að hafa eytt 10.000$ í barnavörur handa stráki. Á vefsíðu systur hennar Jamie Lynn sagði hún að Britney ætti von á barninu í september, seinna var því breytt í október.

Hefur verið frekar algengt seinustu árin í Hollywood að frægar konur reyni að blekkja fjölmiðla svo það myndi ekki koma mér á óvart.