Gamanleikarinn vinsæli Rob Schneider kemur til landsins þriðjudaginn 23. ágúst í tilefni af frumsýningu Deuce Bigalow European Gigolo 9. september, sem er framhald hinnar geysivinsælu Deuce Bigalow Male Gigolo sem sló eftirminnilega í gegn fyrir 6 árum síðan. Rob Schneider er einn vinsælasti gamanleikari landsins og hafa myndir hans verið mjög vinsælar í kvikmyndahúsum sem og á myndbandaleigum. Samstarf hans með Adam Sandler hefur heldur ekki skemmt fyrir en þeir félagar sjást ítrekað í myndum hvors annars.

Þetta er í fyrsta sinn sem svo vinsæll leikari heimsækir land og þjóð markvisst til að kynna nýja kvikmynd. Rob er mjög spenntur fyrir því að koma til Íslands en vinir hans og kunningjar, sem heimsótt hafa Ísland undanfarna mánuði, hafa upplýst hann um okkar ótrúlega land.

Rob verður viðstaddur sérstaka boðssýningu á myndinni í Smárabíói og skemmtir sér með aðdáendum í eftirpartýi að sýningu lokinni. Einnig mun hann gefa sér góðan tíma til að upplifa land og þjóð og skoða helstu ferðamannastaði .

Deuce Bigalow European Gigolo verður frumsýnd á Íslandi föstudaginn 9. september í Smárabíói, Regnboganum, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri.


Tekið af www.bio.is