Daveigh Chase Ég ákvað að setja Daveigh Chase dáldið á kortið hérna, þar sem hún er frábær leikkona!


Daveigh Chase fæddist 24. Júlí 1990 í Las Vegas, Nevada í bandaríkjunum. Hún er einkabarn og býr með mömmu sinni í California.
Hún byrjaði að syngja á ýmsum bæjar atburðum aðeins 3 ára og fór svo í fyrstu auglýsinguna sína 7 ára.
Hún fékk svo hlutverk í nokkrum litlum myndum sem ekki voru voðalega vinsælar en fékk svo hlutverk í Donnie Darko sem Samantha Darko sem setti hana dálítið á kortið. Daveigh fór svo í áheyrnapróf fyrir Lilo og Stitch og endaði með að tala fyrir Lilo í myndinni og vann hún 2 verðlaun fyrir það. Daveigh fékk svo stærsta hlutverk sitt í myndinni The Ring sem hin óhugnalega Samara Morgan og vann hún MTV Movie verðlaun fyrir leik sinn í henni!
Daveigh hefur svo leikið í fullt af litlum myndum og fékk svo hlutverk sem Joyce í þáttunum Oliver Beene sem voru sýndur á Stöð 2 síðastliðinn vetur!


Já, þetta var dálítið um Daveigh Chase.. ekkert voðalega mikið, en þetta var hún =)