Smá um Daniel Radcliffe... Daniel Radcliffe fæddist mánudaginn 31. júlí 1989 í Fulham í vesturhluta London, Englandi. Hann er einkabarn hjónanna Marciu Gresham og Alan Radcliffe. Þegar hann var 5 ára ákvað Daníel að hann vildi verða leikari en foreldrar hans voru ekki hrifnir af hugmyndinni.Það var ekki fyrr en árið 1999 sem Danny (hann vill láta kalla sig Danny) fékk fyrsta hlutverkið sitt í sjónvarpsmynd hjá BBC.En stóra hlutverkið kom upp í hendur hans kvöld eitt þegar hann var á leiksýningu ásamt foreldrum sínum, þá var hann kynntur fyrir framleiðanda og handritshöfundi myndarinnar (David Heyman and Steven Kloves).

Eftir þrjú viðtöl og nokkrar prufutökur hringdi David til að segja Daníel að hann fengi aðalhlutverkið í myndinni. Pabbi hans kom upp á efri hæðina til að segja stráknum fréttirnar og hann fór að gráta af hamingju!Önnur hlutverk: Hinn ungi David Copperfield í samnefndri sjónvarpskvikmynd BBC og Mark Pendel í Klæðskeranum frá Panama.

Daníel segir að ef hann skemmti sér eins vel við gerð seinni myndanna eins og þessarar muni hann leika í eins mörgum og honum býðst en eins og stendur hefur hann aðeins skrifað undir samning um fyrstu tvær myndirnar.

UM MYND #2:

Daníel Radcliffe segir að það hafi verið frábært að fá að aka bíl þótt hann sé aðeins tólf ára.

„Það var geggjað,“ segir hann. „Við sátum í Ford Anglia bílnum og okkur leið eins og fullorðnum gæjum. Það var eins og við værum að keyra alvöru bíl og það var hrikalega ‘kúl’.”

En er hann búinn að taka þátt í Quidditch-senum, þar sem hann fæst við Draco Malfoy á Nimbus 2000 prikinu sínu?

„Já, reyndar - og hann var á hraðskreiðara priki. En ég er samt hrifnari af mínu,“ viðurkennir Daníel.




Aðdáendur Daniels Radcliffe hafa af nógu að taka. Á þessari síðu geturðu séð tvær myndbandsupptökur af viðtölum við Daniel (smelltu á annað hvort „video“ viðtalið). Athugaðu að þú verður að hafa „Real Player“ í tölvunni þinni. Sjá neðar hér á síðunni.

Daniel Radcliffe var valinn úr þúsundum drengja til að leika Harry Potter í myndinni. Hann segir:

„Margir strákar í mínum bekk vita að ég hef bara lesið eina eða tvær Harry Potter bækur og þeir eru með æði fyrir Harry Potter. Þeir eru reiðir yfir því að enginn í bekknum hefur lesið eins lítið af Harry Potter og ég . . . Ég held að ég sé svolítið líkur Harry af því að ég á uglu.“ (Cinescape Online).

Daniel lék í fyrsta sinn í kvikmynd sem sonur Jamie Lee Curtis og Geoffrey Rush í kvikmyndinni ”The Tailor of Panama" (leikstj. John Boorman).

Hann er mikill aðdáandi FULHAM-fótboltaliðsins og hefur gaman af fjölbragðaglímu og Formula 1 kappakstri.
svo er hann líka æðislega sætur*:)