Bandaríska kvikmyndastjarnan Julia Roberts og eiginmaður hennar, kvikmyndatökumaðurinn Danny Moder, eignuðust tvíbura í morgun, dreng og stúlku. Hafa börnin fengið nöfnin Hazel Patricia og Phinnaeus Walter. Þau fæddust rúmum mánuði fyrir tímann en að sögn talsmanns Roberts líður móður og börnum vel.

Roberts, sem er 37 ára, öðlaðist frægð þegar hún lék í myndinni Pretty Woman árið 1990. Hún fékk Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í myndinni Erin Brockovich. Von er á tveimur myndum sem hún leikur í, nú í desember. Annars vegar Closer, sem Mike Nichols leikstýrir, og hins vegar Ocean's Twelve, framhald af myndinni Oceans Eleven, sem Steven Soderbergh, leikstýrir.

Þau Roberts og Moder giftu sig árið 2002. Þau búa í Taos í Nýju-Mexíkó
:)