Sælir hugarar…

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að David Beckham hefur viðurkennt fyrir heiminum og konu sinni Victoriu að hann hafi haldið framhjá henni með ungri konu að nafni Rebecca Loos.
Nú á Victoria að hafa flutt út og skilið við kallinn af borði og sæng.
Ég hef verið Beckham aðdáandi í langan tíma og ég varð bara fyrir hálfgerðum vonbrigðum með kallinn eftir að sögur um framhjáhaldið bárust út. Mér fannst hann og Victoría vera svo geðveikislega flott par. En maður getur svo sem skilið að svona frægir menn (og konur) geta fallið fyrir freistingum, því maður eins og David getur fengið hvaða konu sem er… En auðvitað á maður að vera trúr þeim sem maður er giftur.
En hin tvíkynhneygða er að græða á tá og fingri eftir að frámhjáhaldið spurðist út og fær ríflega greitt fyrir að veita viðtöl og segja sögu sína. Henni hefur einnig verið boðið að sitja fyrir hjá Playboy og á að fá fyrir það 125,000 pund, sem er ágætis summa.
Eftir að Rebecca kom fram á sjónarsviðið hafa nokkrar ungar konur komið fram og sagst hafa átt í ástarsambandi við kappann. En ekki veit maður nú hversu mikill sannleikur er í þeim sögum….

En spurningin er hvort Davið og Victoria eíga eftir að ná sáttum eða skilja……