Dakota lærði að lesa þegar hún var tveggja ára.

Þegar að hún var 8 ára var yngsta manneskjan til að vera tilnefnd fyrir Screen Actors Guild Award fyrir leik sinn í I Am Sam. (2001)

Þegar að hún fékk Best Young Actor/Actress award á Broadcast Film Critics Association fyrir leik sinn í I Am Sam var hún of lítil til að ná upp í míkrafóninn til að fara með ræðuna sína. Orlando Bloom hélt á henni með að hún fór með ræðuna sem varð svolítið löng. :)

Dakota er ein af 14 ömmu/afa börnum.

Hún hefur leikið í fjölda myndum og við munum örugglega öll eftir The Cat In The Hat sem er verið að fara að sýna hér á landi ef það er barasta ekki byrjað og Uptown Girls.

Datkota hefur líka leikið aukahlutverk í sjónvarpssþættinum Friends og kemur fram í þætti 10x14 sem var sýndur í Ameríku á fimmtudaginn 26. febrúar, og Malcolm In The Middle svo fátt eitt sé nefnt. Síðan kom hún í Jay Leno og Opruh fyrir ekki svo löngu.

Þetta er að mínu mati mjög góð leikkona og er ein af skærustu stjörnum framtíðar hvað varðar kvikmyndaleik.

Takk fyrir mig,
kv, Ripp :)
I mean, isn't that just kick-you-in-the-crotch