Mörgum þykir Friends mjög skemmtilegir og mér fynnst það líka… Hérna fyrir neðan er eitthvað um Jennifer Aniston, Courtney Cox, Matthew Perry og David Schimmer.

Jennifer Aniston (Rachel) ólst upp í New York en bjó eitt ár í Grikklandi en guðfaðir hennar var enginn annar en Telly Savalas, sá hinn sami og lék lögreglumanninn Kojak. Jennifer, sem verður 35 ára í næstu viku, á að baki nokkrar kvikmyndir og má þar nefna Along Came Polly, Bruce Almighty og The Rock Star.

Courteney Cox Arquette (Monica) ólst upp í Birmingham í Alabama og ætlaði að verða arkitekt. Courteney hefur sömuleiðis leikið í mörgum kvikmyndum, t.d. Scream, Ace Ventura: Pet Detective, Commandments, Blue Desert og Cocoon. Hún verður fertug í sumar.

Matthew Perry, sem leikur Chandler, er yngstur vinanna, fæddur 19. ágúst 1969. Matthew þótti efnilegur í tennis áður en leiklistin tók völdin. Þegar færi gefst þykir honum fátt skemmtilegra en að fylgjast með íshokkíi.

David Schwimmer (Ross) þykir búa yfir margvíslegum hæfileikum. Hann hefur víðtæka reynslu sem leikari og hefur í seinni tíð einnig snúið sér að leikstjórn. David, 37 ára, hefur t.d. leikstýrt nokkrum þáttum af Vinum.
thordis.91@hotmail.com