Matthew Perry, sem leikur Chandler í Friends, á við vímuefnavandamál að stríða, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann glímir við slíkt vandamál.
Perry hefur talað opinskátt um áfengis- og fíkniefnavanda sinn og um tíma hélt hann að honum hefði tekist að vinna bug á vandanum en svo er ekki. Perry er ekki búinn að snerta eiturlyf í nokkra mánuði en nú þegar hætt er að framleiða Friends- sjónvarpsþættina þá hefur hann sokkið sér aftur í áfengið og eiturlyfin.
Vinir leikarans, þ.á.m. hinir leikararnir úr Friends, ætla að styðja við bakið á leikaranum og reyna að hjálpa honum úr heimi eiturlyfjanna.