Bandaríska CBS sjónvarpsstöðin greiddi söngvaranum Michael Jackson sem nemur 80 milljónum króna fyrir viðtal, sem var sent út í þættinum 60 mínútum á sunnudag, að því er fram kom í dagblaðinu The New York Times í dag. Viðtalið fór fram vegna ásakana á hendur Jackson um að hann hefði beitt barn kynferðislegu ofbeldi. Talsmaður CBC vísað frétt blaðsins á bug og sagði að sjónvarpsstöðin greiddi aldrei fé vegna viðtala.