Samkvæmt skoðanakönnun í Bretlandi vilja flestir að Victoria Beckham verði rekin úr landi en 43% af 90.000 kusu hana. Victoria hefur undanfarið verið á Spáni með eiginmanni sínum David Beckham. Næstur í valinu var Michael Jackson en þriðji var Idol-dómarinn Simon Cowell.