Mig langaði að skrifa smá um söngkonuna Myu með mínum eigin orðum.

Mya heitir fullu nafni Mya Marie Harrison og er fædd 10. október 1979 í Washington DC í Bandaríkjunum.

Mya hefur gefið frá sér mörg góð lög í gegnum feril sinn.
Þar má nefna, “Lady Marmelade” sem hún söng með Pink, Lil’ Kim og Christinu Aguileru, “Free” og “My Love Is Like… Wo” sem hefur orðið svona nokkuð vinsælt, en Missy Elliot syngur með henni í
“My Love Is Like… Wo”

Mya hefur gefið út a.m.k 3 geisladiska sem heita “Mya”, “Fear Of Flying” og sá nýjasti heitir svo “Moodring”

Á nýjasta disk hennar syngja m.a Sean Paul og Missy Elliot með henni.

Ég veit að þetta er mjög stutt grein, en það er næstum ekkert fjallað um hana hérna á þessu áhugamáli svo mig langaði að skrifa smá um hana.

Njótið..
Kv. -mizzy