oppprinsessan Britney Spears hefur fengið sína eigin stjörnu á stjörnugangstéttina í Hollywood og er hún yngst allra söngvara til að hljóta þann heiður.

“Mig hefur dreymt um þetta síðan ég var lítil stúllka. Ég trúi því ekki að ég sé með ykkur hérna, frábæru aðdáendur,” sagði hún við 2.000 aðdáendur sem söfnuðust saman og hylltu stjörnuna. Britney, sem er 21 árs gömul, er ein söluhæsta söngkona tónlistarsögunnar og hefur nú selt meira en 54 milljónir platna síðan árið 1999.

Undanfarið hefur hún verið að breyta ímynd sinni, frá því að vera saklaus táningur yfir í að vera kyntákn, m.a. með umtöluðum kossi hennar og Madonnu og með því að sitja fyrir í efnislitlum flíkum.

Hún hefur varið þessa nýju ímynd sína með kjafti og klóm og segist enn vera góð fyrirmynd fyrir ungar stúlkur. “Fullt af fólki telur að þessar myndir séu of djarfar, en það er þess skoðun,” sagði Britney nýlega í útvarpsviðtali við BBC. “Mér finnst jákvætt að geta tjáð sig á jákvæðan hátt,” sagði stjarnan ennfremur.

var ég lengi að skrifa reinina svo njótið vel!

kv maria