Skötuhjúin Cameron Diaz og Justin Timberlake rifust heiftarlega í næturklúbbi í New York á dögunum eftir að Diaz dansaði við karlmann á staðnum.
Vitni segja að parið hafi látið vel hvort að öðru fyrr um kvöldið en Justin varð heldur óhress þegar Diaz fór upp á svið og dansaði eggjandi dans við gest á staðnum. Að lokum missti Justin þolinmæðina og skammaði Diaz sína sem sagði honum að hundskast í burtu. Justin varð svo mikið um að hann rauk á dyr en Diaz hélt áfram að dansa.

Britney bandill!

Britney Spears er bandill þessa dagana eftir að fyrirtæki sem framleiðir megrunarpillur notaði hana í auglýsingar sínar í leyfisleysi. Poppdrottningin sást nefnilega missa glas af Zantrez 3, vinsælum megrunarpillum, á flugvelli fyrr á árinu og náðist mynd af atvikinu sem framleiðandinn hefur notað í söluherferð sinni.
Í auglýsingunum kemur fram að loks hafi tekist að afhjúpa megrunarleyndarmál Britney en talsmenn hennar segja möguleika á að hún fari í mál verði herferðinni ekki hætt.

www.mbl.is
I mean, isn't that just kick-you-in-the-crotch